Vísa vikunnar ( 17 ): Út í tómið talar sperrt

Molar
Share

Hamingjudagar á Hólmavík hófust fimmtudagskvöldið 30. júní með vísnakvöldi, sem var vel sótt. Þar voru mættir Strandamenn og Borgfirðingar og létu gamminn geysa. Georg Jón Jónsson, bóndi á Kjörseyri í Hrútafirði átti marga góða spretti. Hann orti í orðastað Halldórs Blöndal um Lúðvík Bergvinsson:

Út í tómið talar sperrt
tungan fer í marga hringi.
Það er bara vítavert
að vera með hann inn á þingi.

Ég get ekki á mér setið og birti aðra eftir Georg Jón. Hún er um vistaskipti Gunnars Örlygssonar :

Frelsið og sjálfstæðið liggur í landi
og leiðir nú flokkinn þann.
Enda flykkjast fyrrverandi
fangar inn í hann.


film izle
video
film seyret
komik fikralar
evden eve nakliyat
video izle
full film izle

Athugasemdir