F. í Reykjavík 19. ágúst 1952. For.: Gunnar H. Kristinsson (f. 1. nóv. 1930, d. 27. ágúst 2000) hitaveitustjóri og k. h. Auðbjörg Brynjólfsdóttir (f. 1. nóv. 1929, d. 17. jan. 2000) starfsmaður heimilishjálpar í Reykjavík, móðir Gunnars Birgissonar alþm.
K.1. (17. júní 1976) Aldís Rögnvaldsdóttir (f. 29. mars 1956) framkvæmdastjóri. For.: Rögnvaldur Karstein Guðmundsson og k. h. Erla Sigurgeirsdóttir.
K.2. (4. sept. 2004) Elsa Björk Friðfinnsdóttir (f. 9. okt. 1959) hjúkrunarfræðingur, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. For.: Friðfinnur Friðfinnsson og k. h. Rannveig Ragnarsdóttir.
Börn Kristins og Aldísar: Dagný (1978), Erla (1979), Rögnvaldur Karstein (1981), Rakel (1985).

Stúdentspróf MR 1972. BS-próf í stærðfræði HÍ 1979. BA próf frá HÍ í ensku með  þýsku sem aukagrein 2012. MA próf í political theory frá University of Leeds 2013. MS próf í hagfræði frá HÍ 2016. Kennsluréttindi á framhaldsskólastigi frá HÍ 2016.

Kennari við Grunnskóla Tálknafjarðar 1973, Grunnskóla Bolungarvíkur 1974-1975 ; 1979-1981 og 2014-2015, Öldutúnsskóla 2014, Gagnfræðaskóla Sauðárkróks 1975-1976, Fjölbrautarskólann í Ármúlaskóla og Fjölbrautaskólann í Breiðholti 1977-1979 og við  Menntaskólann við Sund frá 2016.

Skrifstofustjóri hjá Jóni Fr. Einarssyni, byggingarþjónustu, í Bolungarvík 1981-1986, starfsmaður Bókhaldsþjónustunnar þar 1986-1991.

Bæjarfulltrúi í Bolungarvík 1982-1998, í bæjarráði 1986-1991, 1994-1995 og 1997-1998. Formaður stjórnar kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum 1982-1985. Formaður Verslunarmannafélags Bolungarvíkur 1982-1992. Formaður knattspyrnudeildar UMFB 1984-1988. Í framkvæmdastjórn Landssambands íslenskra verslunarmanna 1987-1991. Í flugráði 1987-1991. Í stjórnarnefnd um Skipaútgerð ríkisins 1989-1992. Í framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins 1989-1998. Í stjórn Húsnæðisstofnunar ríkisins 1991-1995. Í stjórnskipaðri nefnd um sameiningu sveitarfélaga frá 1991. Í stjórn Byggðastofnunar 1995-1999, formaður stjórnar 2000-2002. Í framkvæmdastjórn, landsstjórn og miðstjórn Framsóknarflokksins frá 1999 til 2003. Í tryggingaráði 2003 – 2004 og formaður stjórnar Tryggingarstofnunar ríkisins frá 2004 – 2007. Í stjórn Sjúkratrygginga Íslands 2010- 2014.

Alþm. Vestf. 1991-2003 (Alþb., Ufl., Framsfl.), alþm. Norðvest. 2003 – 2009 (Framsfl. Frjálslyndi flokkurinn, Ufl).
Formaður þingflokks Framsóknarflokksins 1999-2003 og þingflokks Frjálslynda flokksins 2007 – 2008.
Félagsmálanefnd 1991-1995, allsherjarnefnd 1991-1995, fjárlaganefnd 1995-1999, sérnefnd um fjárreiður ríkissins 1995-1997, sérnefnd um stjórnarskrármál 1999–2002, 2003 og 2004, sjávarútvegsnefnd 1998-2004 (form. 1998-1999) og 2005-2007, menntamálanefnd 1999-2003, landbúnaðarnefnd 1999-2003 og 2006-2007, efnahags- og viðskiptanefnd 1999-2004, sérnefnd um stjórnarskrármál 1999-2002, 2003 og 2004, iðnaðarnefnd 2003-2004 (form.) og 2007, samgöngunefnd 2003-2004. Félags- og tryggingarmálanefnd 2007 – 2009. Umhverfisnefnd 2005-2007. Utanríkismálanefnd 2007-2009. Heilbrigðisnefnd 2009.
Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 1999-2003, Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2003-2004 og 2006 – 2007. Íslandsdeild VES-þingsins 2007–2009. Forsætisnefnd Alþingis 2008-2009. 5. varaforseti Alþingis 2008–2009, 6. varaforseti Alþingis 2009.

Ritstjóri: Vestfirðingur, málgagn Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum (1990-1998) og Ísfirðingur, málgagn framsóknarmanna á Vestfjörðum (2004 – 2006). Landsmálablaðið Vestfirðir frá 2014. Heimasíða kristinn.is frá  2005. Vefurinn bb.is Ísafirði frá október 2018.