Framsalið: 35 milljarða króna árleg tekjulind

Pistlar
Share

Á annað sinn á tæpum áratug er ráðist í gagngera endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða. Fyrri endurskoðun lauk árið 2002 á þann veg að kerfið var framlengt nánast óbreytt. Sú sátt reyndist strax haldlaus enda í engu hróflað við úthlutunarkerfinu sjálfu og ákvæðum framsalsins. Sáttin frá 2002 reyndist svikasátt. Kjósendur voru sviknir.

Frá því að handhafar kvótans sigldu í öruggt skjól óbreyttra laga hafa skuldir sjávarútvegsins vaxið hröðum skrefum. Þær fimmfölduðust frá 1997 til 2008 og að meðaltali jukust skuldirnar um 35 milljarða króna á ári. Þær jukust um nærfellt 400 milljarða króna .

Andvirði kvóta sem rann út úr fyrirtækjunum í vasa eigandanna er meginástæða skuldasöfnunarinnar. Svo virðist sem þessa fjárhæð sé hægt að taka út úr sjávarúveginum að jafnaði á hverju ári, að minnsta kosti hafa handhafar kvótans gert það. Viðskiptabankarnir telja að sjávarútvegurinn geti borið þessar skuldir og þá er niðurstaðan að rekstur útgerðarfyrirtækja þolir þessa árlegu úttekt. Spurningin er aðeins hver fær ágóðann, 166 eigendur kvótans í aflamarkskerfinu, viðskiptabankarnir eða opinberir aðilar.

Þetta er átakalínan við endurskoðun kvótakerfisins rétt eins og áður.Nú eiga menn að læra af mistökunum og varast að gefa kvótahöfunum áfram alla möguleika að taka til sín tugi milljarða króna. Óbreytt kvótakerfi gerir það. Samningar við LÍÚ um langtímaafnot gera það líka. Slíkir samningar til t.d. 20 ára munu líklega viðhalda svipuðu kvótaverði og þar með svipuðu árlegu útstreymi fjár.

Það er hlægilegt að taka til ríkisins aðeins 6,44 kr fyrir heimild til þess að veiða 1 kg af þorski þegar útgerðarmenn leigja leyfið til þriðja aðila fyrir 300 kr. Útvegsmenn þurfa aðeins að veiða helminginn af kvótanum og geta látið aðra veiða fyrir sig hinn helminginn með rífandi gróða. Fiskveiðiárið 2008/9 var 40% allra útgefinna veiðiheimilda í þorskígildum talið veitt af öðrum en fékk úthlutunina.

Hví eiga skattgreiðendur að una stórfelldum skattahækkunum ríkisins þegar tiltölulega fáir handhafar kvótans fá nánast endurgjaldslaust áfram að skattleggja aðra? Það vantar þessa 35 milljarða í þjónustu fyrir almenning.

Athugasemdir