Vísa vikunnar ( 153): Við erum flest í vígamóð

Molar
Share

8. febrúar 2011.

Glugginn er lítið blað sem gefið er út vikulega á Blönduósi. Þar er birt vísa vikunnar. Í síðasta Glugganum er þessi vísa merkt Ó.S.:

Við erum flest í vígamóð
verðmæti að skapa,
samt er eins og þessi þjóð
þurfi öllu að tapa.

Athugasemdir