Hvítnar ekki þótt annan sverti

Pistlar
Share

Norður í Eyjafirði er stundum haft að orði að enginn hvítni þótt annan sverti. Ritstjóri Fréttablaðsins hefur líklega ekki heyrt það. Hann svertir fjármálaráðherra landsins og þingmenn landsbyggðarkjördæmanna í skoðun miðvikudagsblaðsins fyrir Árbótarmálið. Ritstjórinn nýtur stuðnings viðskiptaráðherra í greiningu sinni , sem telur að gera þurfi landið að einu kjördæmi og losna við kjördæmapot. Hér er mikil hafvilla uppi.

En fyrst um Árbótarmálið, þar er Fréttablaðið full fljótt að fella dóm. Ekki eru öll gögn komin fram og óvarlegt er að ætla að embættismaður hafi einn rétt fyrir sér. Sanngjörn blaðamennska felst í því að skoða með gagnrýnum augum báða málsaðila, líka þann sem veitir blaðinu upplýsingarnar.

Fréttablaðið ætti að afla frekari gagna og skýra sjónarmið ráðuneytanna og rekstraraðila Árbótar og upplýsa hvers vegna samið var frekar en að deilan færi fyrir dómstóla. Samningaleiðin virðist ekki vera óskynsamleg miðað við framkonar upplýsingar. Fréttablaðið mætti líka upplýsa lesendur sína um það hvers vegna varð að færa starfsemina nær höfuðborgarsvæðinu. Er Norðurlandið ekki hluti af Íslandi?

En þá að kjördæmapotinu. Slíkur talsmáti felur í sér aðdróttun um yfirmáta ósanngjarna hegðun þingmanna vegna þess eins að þeir eru kosnir í kjördæmum. Vissulega geta störf þeirra stundum orkað tvímælis, en það á við um þingmenn allra kjördæma.

Þingmenn kjördæmanna á höfuðborgarsvæðinu hvítna ekki við það að sverta landsbyggðarþingmennina. Áfram munu hagsmunir toga í ráðamenn þótt landið verði eitt kjördæmi. Það verða fleiri þingmenn af höfuðborgarsvæðinu og þar með ráða hagsmunirnir þar enn meira en nú er. Þessu vilja ritstjórinn og viðskiptaráðherrann ná fram, minni áhrif landsbyggðarinnar. Þess vegna er verið að sverta kjördæmafyrirkomulagið og fjármálaráðherrann.

Samfylkingarráðherrann ætti að spyrja félaga sína í jafnaðarmannaflokkum Evrópu hvers vegna þeir styðja alls staðar kjördæmafyrirkomulag, svo sem í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi með mismunandi mikið misvægi atkvæða er eftir kjördæmum. Hann mun fá þau svör að það sé eðlilegt og skynsamlegt fyrirkomulag sem veitir öllum íbúum hvers lands nauðsynlegt áhrif. Ætlar hann að mótmæla því?

Athugasemdir