Sjónarspil Framsóknar

Pistlar
Share

Síðustu daga Framsóknarflokkurinn leikið sjónarspil í stjórnarskrármálinu. Hafa forystumenn flokksins á leið á flokksþing skyndilega munað eftir ákvæði stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þess efnis að sett skuli í stjórnarskrá Íslands ákvæði sem kveður á um þjóðareign á auðlindum sjávar.

Það voru einkum framsóknarmenn sem vildu hafa þetta ákvæði í stjórnarsáttmálanum í framhaldi af málflutningi flokksins í aðdraganda Alþingiskosninganna 2003. Skipuð var sérstök nefnd allra flokka undir forystu framsóknarmanns til þess að koma sér saman tillögur um breytingar á stjórnarskránni. Þessi sama nefnd skilaði af sér nýlega án þess að efna ákvæði stjórnarsáttmálans. Ekki vegna ágreinings við stjórnarandstöðuna og engin skýring hefur verið gefin á því hver gerði ágreining.

En niðurstaðan varð sem sé að málið skildi liggja og framsókn sætti sig við það. Þess vegna er þetta sjónarspil nú. Leikurinn er sá að fá almenning til þess að halda að framsókn hafi viljað efna loforðið en sjálfstæðismenn staðið gegn því. Einstakir leikarar hafa að vísu ofleikið sitt eins og Siv Friðleifsdóttir sem hótaði óvart stjórnarslitum og sú replikka í leikritinu hefur valdið óróa í báðum stjórnaflokkum.

Nú er verið að leita að leið út úr málinu. Það gengur ekki lengur að gera ekkert, sérstaklega eftir stjórnarslitahótunina. Spurningin er hvernig verður lendingin. Bandaríkjamenn segja gjarnan við álíka aðstæður: follow the money. Það mætti alveg eins segja finnið helstu fjárhagslegu hagsmunaaðilana.

Í þessu stóra og langvarandi deilumáli um forræði og yfirráð yfir fiskveiðiheimildunum hafa hagsmunaaðilarnir lengi verið mjög sýnilegir og beitt sér, kvótaeigendurnir. Áhrifamestu hópur þeirra er LÍÚ og hann hefur mikil ítök í báðum stjórnarflokkunum. LÍÚ réði niðurstöðu um sjávarútvegsstefnu Framsóknarflokksins á sínum tíma, árið 2001, þegar um þau mál var tekist. Síðan þá hefur LÍÚ lagt mikið kapp á að fá viðurkenndan einkaeignarrétt útgerðarmanna að veiðiheimildunum.

Það er mín sannfæring að útgerðarauðvaldið í báðum flokkum hafi náð að drepa auðlindaákvæði stjórnarsáttmálans og það sé mikil einföldun að kenna Sjálfstæðisflokknum einum um. Þegar rennur upp fyrir mönnum hvað verður mikill órói vegna þessara vanefnda, sérstaklega innan Framsóknarflokksins hefst sjónarspilið.

Mér finnst líklegast að stjórnarflokkarnir ætli sér að koma fram með tillögu að ákvæði í stjórnarskrána sem ekki kveður afdráttarlaust um eignarhald þjóðarinnar að auðlindinni og að auki þrengir möguleika Alþingis frá því sem nú er til þess að breyta kvótakerfinu eða afnema það. Með öðrum orðum nota sjónarspilið til þess að þjóna hagsmunum LÍÚ en undir öðru yfirskyni. Svo má benda á að á bak við kvótaeigendurna eru bankarnir.

Follow the money. Það er lóðið.

Athugasemdir