Hundrað milljarða kr atkvæðareikningur

Pistlar
Share

Helgi Hjörvar alþm er hálfdrættingur á við Kristján Þór Júlíusson ,þingmann Sjálfstæðisflokksins, þegar kemur að uppboðsmarkaði á skattfé almennings. Hann telur sig af þeim sökum hófsemdarmann og tillögur sínar sáttatilboð. Þetta er alvarlegur misskilningur. Tillagan er róttæk, breytir leikreglum eftir á, ógildir bindandi samninga og gerir eignir upptækir á kostnað ríkissjóðs. Tillaga Helga færir afmörkuðum hópi íbúðakaupenda 100 milljarða króna og ætlar skattgreiðendum að greiða reikninginn.

Þessi fjárhæð er tvöfalt hærri en það sem ríkið leggur árlega til almannatryggingakerfisins. Hún er þrisvar sinnum hærri en kostnaðurinn við rekstur Landsspítalans. Þar sem ríkið verður að skera niður útgjöld til þess að eiga fyrir sátt Helga Hjörvar munu aldraðir og sjúkir greiða þennan reikning. Ellilífeyrir verður skertur og dregið úr þjónustu hins opinbera bæði nú og í framtíðinni.

Þeir sem eiga rétt á þessari þjónustu og munu þurfa á henni að halda á næstu árum hafa spilað eftir leikreglunum í þjóðfélaginu, greitt sína skatta, keypt sér húsnæði og virt þá samninga sem það hefur gert. Opinber gögn benda til þess að hópurinn sem keypti í eignabólunni og Helgi vill gefa skattféð, sé vel menntaður, með góðar tekjur, á fertugsaldri og hafi ekki verið að kaup sína fyrstu íbúð. Því er líklegt að flestir hafi selt íbúð á uppsprengdu verði og haft verulegan hagnað. Gangi eftir tillögur Helga Hjörvar og fleiri verður hagnaðurinn einkavæddur en tapið sent á skattgreiðendur.

Gylfi Magnússon, fyrrverandi ráðherra, skrifaði fyrir nokkrum dögum grein í Fréttablaðið og setti fram sínar hugmyndir til lausnar. Þær voru raunhæfar og tóku mið af því sem áður hefur verið gert við svipaðar aðstæður. Gylfi leggur til að þeir sem keyptu sína fyrstu íbúð í eignabólunni á fasteignamarkaðinum fái á næstu árum ríkisaðstoð í gegnum vaxtabótakerfið. Það má kalla sanngjarnt þar sem þeir fengu engan eignabóluhagnað en báru fullan kostnað af háu íbúðaverði.

Tillögur Gylfa eru miklu frekar sáttatilboð en þjóðnýting Helga Hjörvar fyrir fáa útvalda. Meginreglan verður að vera að ábyrgðin af viðskiptum hvíli aðeins á þeim sem eiga í viðskiptum.

Athugasemdir