Áfram fyrir land og þjóð

Pistlar
Share

Morgunblaðið slæst í för með Utanríkisráðherra í leiðara blaðsins í gær og heldur því að lesendum sínum að annaðhvort verði Íslendingar að ganga í Evrópusambandið eða að hverfa aftur til fortíðar. Annaðhvort sæki landsmenn fram með frjálsum viðskiptum eða pakki í vörn í ástandi sem var fyrir daga EES samningsins.

Þetta er röng lýsing á stöðunni og valkostum þjóðarinnar. Eðlileg viðbrögð við fjármálaskreppunni og gjaldþroti viðskiptabankanna er að setja frekari reglur um frjáls viðskipti og fjárfestingar og taka fyrir þann leka á löggjöf Íslands sem gerði fjárglæframönnum kleift að velta eigin skuldbindingum á herðar þjóðarinnar. Það þarf að taka upp frelsi með ábyrgð. Slíkt skref er áfram en ekki afturá bak.

Það er hins vegar í mínum huga afturhvarf til fortíðar að opna fiskveiðilögsögu landsins fyrir erlendum fiskiskipum, svo sem breskum og fela Evrópusambandinu meira og minna yfirráð og stjórnun fiskveiðiauðlindar íslensku þjóðarinnar. Aðild að Evrópusambandinu felur þetta í sér, stórt skref til fortíðar. Við skulum halda áfram á eigin forsendum fyrir land og þjóð.

Greinin birtist í Mbl. í dag.

Athugasemdir