Þingnefndin birti gögnin sem ríkisstjórnin hélt leyndum

Pistlar
Share

Í síðustu viku var birtur opinberlega vitnisburður Carne Ross , eins af aðalsamningamönnum bresku ríkisstjórnarinnar á Sameinuðu þjóðunum í aðdraganda Íraksstríðsins, sem hann gaf sumarið 2004 fyrir rannsóknarnefndinni sem Butler lávarður stýrði. Fram höfðu komið ásakanir þess efnis að ríkisstjórnin hefði gert of mikið úr fyrirliggjandi upplýsingum í aðdraganda stríðsins í þeim tilgangi að réttlæta innrásina og þátttöku Breta í henni. Butler nefndin var sett á fót til þess að rannsaka þær ásakanir og í stuttu máli hreinsaði Blair forsætisráðherra og ráðuneytið af þeim.

Ross var fyrsti ritari sendinefndar Breta hjá Sameinuðu þjóðunum og fór sérstaklega með málefni Íraks. Í skriflegum vitnisburði hans til Butler nefndarinnar upplýsti hann að fyrir innrásina hefði það legið fyrir að engar upplýsingar væru um gereyðingavopnaeign Íraka fyrir innrásina og ennfremur að engin áform hefðu verið af hálfu Íraka um að ráðast á nágrannaríki sín eða Bretland og Bandaríkin. Ross sagði skýrt og skorinort að Blair hlyti að hafa vitað af þessu og benti m.a. á að breska ríkisstjórnin hefði aldrei haldið því fram fyrir Sameinuðu þjóðunum, meðan Ross var þar, að vopnaeign Íraka ógnaði Bretlandi eða hagsmunum þess.

Þetta gengur í berhögg við málflutning forsætisráðherrans á þeim tíma, en hann hélt því fram innrásin væri lögleg vegna þess að Saddam ætti gereyðingarvopn sem hægt væri að gera klár á innan við 45 mínútum og ógnuðu Breskum hagsmunum. Breska blaðið Independent gengur svo langt í frétt um málið þann 15. desember sl. að fullyrða að vitnisburður Ross sýni að Tony Blair hafi logið um vopnaeign Saddams Hussein og er varla hægt að mótmæla þeirri staðhæfingu.

Carne Ross var það misboðið vegna framferðis bresku ríkisstjórnarinnar að hann sagði upp störfum þremur mánuðum eftir að hann sendi skýrslu sína til Butler nefndarinnar og fórnaði fyrirsjáanlegum frama innan utanríkisþjónustunnar.

Framburði Ross hefur verið haldið leyndum vegna þess að breska utanríkisráðuneytið hótaði annars að kæra hann fyrir brot á lögum um ríkisleyndarmál. Ross var hins vegar tilbúinn að láta skýrslu sína af hendi við utanríksmálanefnd breska þingsins, enda yrði hann ekki ákærður með skírskotun til friðhelgi þingsins.

Þingnefndin var í þeirri stöðu að velja á milli þess að verja forsætisráðherrann og koma í veg fyrir að almenningur fengi að vita af ósannindum hans eða að gæta almannahagsmuna og sjá til þess að almenningur fengi réttar upplýsingar. Það má kannski orða svo að þingmennirnir í nefndinni urðu að gera það upp við sig hvort þeir ætluðu að verja sinn mann eða þjóna almenningi. Spila í liðinu með Blair og taka þátt í því að spila með breskan almenning. Eða að opinbera upplýsingarnar þótt óþægilegar væru.
Formaður nefndarinnar er að sjálfsögðu þingmaður Verkamannaflokksins, Independent kallar hann "government loyalist" hann vildi að sjálfsögðu íhuga málið vel og vandlega en annar þingmaður nefndarinnar úr Verkamannaflokknum var ósammála og beitti sér fyrir því að nefndin fengi vitnisburðinn og að hann yrði svo gerður opinber. Eftir lokaðan fund í nefndinni, þar sem mikið mun hafa gengið á að sögn Independent, varð niðurstaða nefndarinnar að. afla sér vitnisburðar Ross og birta hann á netinu Svo virðist að Utanríkisráðuneytið hafi ekki viljað standa við hótun sína um málssókn þegar á reyndi, því þingmennirnir fengu fullvissu frá ráðuneytinu um að birtingin bryti ekki í bága við umrædd lög um ríkisleyndarmál.

Niðurstaðan er sú að þingnefndin stóðst prófið, þingmennirnir gættu almannahagsmuna, en ekki perónulegra hagsmuna forystumanns stjórnarflokksins sem var búinn að koma sér í vandræði. Af þessu fordæmi Breta geta ýmsir lært þarfa lexíu.

Athugasemdir