Sjávarútvegur 2016: Hreinn hagnaður jókst um 12%

Pistlar
Share

Enn er í fersku minni leiftursókn útgerðargreifanna að almannahag í byrjun ársins. Talsmenn LÍÚ ráku upp mikið ramakvein yfir því að veiðigjaldið jókst í samræmi við aukinn hagnað 2015. Var því mjög haldið fram að greiðslur til ríkisins í formi veiðigjalds og tekjuskatts af hagnaði væru svo yfirgengilegar orðnar að þær væru skattheimta á sterum. Eðlilega var fyrsta hugsun almennings að vorkenna eigendum fyrirtækjanna. En svo kom annað í ljós þegar afkoman var skoðuð. Fyrirtækin í sjávarútvegi voru að græða meira eftir að þau höfðu staðið skil á veiðigjaldinu en ekki minna. Gróðinn var að hækka úr 10 milljörðum króna upp í 20 milljarða króna. Meiri gróði er ekki minni hagnaður.

 

Hreinn hagnaður af fiskveiðum hækkar

 

Hagstofa Íslands hefur loks birt skýrslu sína um afkomu sjávarútvegsins á árinu 2016. Skýrslan staðfestir áframhaldandi góðæri í greininni. Hreinn hagnaður af fiskveiðum hækkaði úr 31 milljarði króna upp í 33 milljarða króna. Hvorki meira né minna en 24,2% af tekjum í fiskveiðum stóð eftir sem hreinn hagnaður þegar búið var að draga frá allan kostnað við reksturinn, svo og afskriftir og fjármagnskostnað. Hlutfallið var aðeins 20,1% árið áður og hækkunin því heil 4,1% af tekjum. Afkoman af veiðunum varð betri árið 2016 en ekki verri, þrátt fyrir hækkandi gengi íslensku krónunnar.

Hreinn hagnaður í heild hækkar

Það kemur svipað í ljós þegar skoðuð er afkoman á árinu 2016 af bæði veiðum og vinnslu, þ.e.  sjávarútveginum í heild. Hreinn hagnaður hækkar frá 2015 um 5,5 milljarða króna og varð nærri 53 milljarðar króna. Hækkunin er 12% af hreinum hagnaði ársins áður, 2015.

Vissulega má sjá að hækkun gengisins fækkar krónunum sem fyrirtæki fá í tekjur fyrir afurðirnar. En útgjöldin lækka líka og reyndar lækka þau meira og þess vegna vex hreinn hagnaður.

 

Aflahlutir ekki lægri síðan 2009

Það eru einkum aflahlutir og olíukostnaður sem lækka frá fyrri árum. Útgerðin greiddi 36,4 milljarða króna í aflahluti á árinu sem er um 5 milljarða króna lækkun frá 2015. Aflahlutirnir hafa ekki verið lægri síðan á árinu 2009. Með öðrum orðum sjómennirnir verða fyrir launalækkun vegna gengishækkunar íslensku krónunnar. Þá er olíukostnaðurinn aðeins 9 milljarðar króna og hefur lækkað gríðarlega frá 2012 þegar hann var um 25 milljarðar króna á verðlagi í dag. Þar af er lækkun olíukostnaðarins um 4,5 milljarðar króna frá 2015. Olíukostnaður ársins 2016 varð sá lægsti á þessari öld og ef til lengur. Það er einkum verðlækkun olíunnar erlendis sem skýrir þennan búhnykk.

 

Fjármagnskostnaður minna en enginn

En það sem kannski er eftirtektarverðast við afkomu sjávarútvegsins á síðustu árum er hvað fjármagnskostnaðurinn reynist vera lágur. Sterk staða ískensku krónunnar hefur jákvæð áhrif þróun skulda og kostnaðinn af fjármagninu, vaxtakostnaðinn. Mörg stóru sjávarútvegsfyrirtækin hafa fært skuldir sínar í erlenda mynt og sækja þannig lægri vexti og þegar viðbætist að gengi íslensku krónunnar styrkist skreppur fjármagnskostnaðurinn saman. Á árinu 2016 varð fjármagnskostnaðurinn minna en enginn! Samkvæmt yfirliti Hagstofunnar hafði atvinnugreinin 7 milljarða króna tekjur af fjármagni nettó. Þetta er annað árið af síðustu fimm sem þetta gerist. Samanlagður fjármagnskostnaður sjávarútvegsins árin 2012 – 2016 er aðeins um 5,5 milljarðar króna. Það samsvarar einungis 0,7% af tekjum þessara 5 ára. Kostnaður af skuldum í sjávarútvegi er satt að segja óverulegur á þessu árabili. Íbúðarkaupendum á Íslandi þætti það mikill happafengur ef svo myndi atvikast að þeir greiddu aðeins 0,7% af tekjum sínum vegna íbúðarkaupanna. En þeim standa ekki til boða þessi afburðakjör sem fyrirtækjum í sjávarútvegi býðst. Útgerðin getur valið það besta úr báðum heimum, fengið lága evruvexti og notað krónuna til þess að lækka rekstrarútgjöld sín svo sem til launa sjómanna.

Eigið fé hækkar um 41 milljarð króna

En aftur að heildarafkomu sjávarútvegsins, veiða og vinnslu á árinu 2016. Í skýrslu Hagstofunnar kemur fram að skuldlaust eigið fé fyrirtækjanna í atvinnugreinni jókst úr 221 milljarði króna upp í 262 milljarða króna á árinu 2016. Það var nú ekki verra en það ástandið sem útgerðarauðvaldið grætur yfir þessa dagana. Eigið fé hækkaði um 41 milljarð króna á einu ári. Það er 18,5% hækkun á eigin fé eftir að hið skelfilega veiðigjald hefur verið greitt! Það verður að teljast býsna góð ávöxtun.

Það sem enn athyglisverðara er að fyrir 7 árum, eftir bankahrunið,  var eigið fé í sjávarútvegi ekkert. Nú er það 42% af eignum. Á aðeins 7 árum hefur það vaxið upp í 262 milljarða króna.

Gripdeildir

Niðurstaðan er augljós. Það er vitlaust gefið. Fáum kvótagreifum er mikið gefið en almenningi er lítið gefið nema þá helst langt nef. Sjávarútvegur á auðvitað eins og aðrar atvinnugreinar að búa við umgjörð sem gefur kost á hagnaði. En þetta er ekki eðlilegt. Þetta eru gripdeildir en ekki hagnaður. Þetta er ömurlegur vitnisburður um stjórnmál flokka frá hægri til vinstri sem eru gegnsósa af óeðlilegri sérhagsmunagæslu. Mál er að linni.

Kristinn H. Gunnarsson

 

Togarar í Ísafjarðarhöfn.

Athugasemdir