Skuldafangelsi Íslandsbanka

Pistlar
Share

Viðskiptabankarnir beita öllu afli sínu og verja óbreytt kvótakerfi. Þeir hæla kerfinu á hvert reipi og Íslandsbanki lofar það í hástert. Bankastjórinn segir áróðurstríð vera í gangi og nú verði allir að velunnarar þeirra sem eiga ótímabundinn einkarétt á hagnaðinum að verjast áformum stjórnvalda. Það er um mikla peninga að tefla, arðurinn er talinn vera um 35 – 45 milljarðar króna á hverju ári.

Reynslan kennir okkur að það má efast um dómgreind stjórnenda bankanna.Það eru aðeins þrjú ár síðan þessir bankar fóru allir á hausinn vegna óábyrgra útlána. Aðeins var hugsað um skyndigróðann og fátt var byggt upp í íslensku atvinnulífi. Á árunum 2003-2008 keyrði um þverbak og fjármálastofnanir skuldsettu framtíðina í sjávarútveginum. Skuldirnar jukust um 400 milljarða króna, mest á ofangreindum árum.

Bankarnir stjórna nú sem þá verðlagi á veiðiheimildunum í samráði við fáeina útgerðarmenn. Gerviverðlagning kvótans er spilaborgin sem fjárhættuspil Íslandsbanka og annarra banka hvílir á. Stór hluti skuldanna er byggður á skáldskap íslenskra bankastjóra um verðlag á kvóta sem hafði þann eina tilgang að eyða á stuttum tíma öllum hagnaði af sjávarútvegi næstu 15-20 árin og koma honum í hendur fárra aðila.

Alþjóðaefnahagsráðið setur íslensku bankana á botninn meðal 143 þjóða á lista um heilbrigði banka. Þeir eiga það fyllilega skilið. Það er ekkert heilbrigt við skuldsetninguna í sjávarútveginum. Hún varð ekki til þess að endurnýja skipin, hún leiddi ekki til fjárfestingar í öðrum varnalegum rekstrarfjármunum, hún varð ekki til þess að auka framleiðni í útgerðinni og hún varð ekki til þess að innleiða samkeppni og auka hæfni stjórnenda.

Skuldafangelsið sem viðskiptabankarnir settu sjávarútveginn í varð aðeins til þess að 500 fjölskyldur velta sér upp úr auðæfum, sem aldrei áður í Íslandssögunni hafa verið jafnmikil á höndum jafnfárra. Þetta er kerfið sem bankastjóri Íslandsbanka vill verja með kjafti og klóm. Kerfi sem mun viðhalda skuldafangelsi í sjávarútvegi. Þetta eru ráð þeirra sem eru lengst frá því að reka heilbrigt bankakerfi. Nóg er komið af þeim óráðum.

Athugasemdir