Flokkur út á kant ?

Pistlar
Share

Í vikunni hefur Gunnar Bragi Sveinsson, sem er einn af bæjarfulltrúum minnihlutans á Sauðárkróki, farið fram í fjölmiðlum með harða gagnrýni á mig. Vill hann koma mér af þingi og það strax. Það eru ekki nýjar fréttir, afstaða hans hefur legið fyrir lengi og hann hefur nýtt mörg tækifæri til þess að tala fyrir þeirri skoðun sinni, ekkert síður að mér fjarstöddum en viðstöddum.

Verra er að hann hefur farið með ósannindi, sem hann viðhafði á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi og voru þar rekin ofan í hann. Hann heldur því fram að ég hafi farið í bakið á formanni flokksins eftir að hann var farinn af þinginu. Hið rétta er að ég var að svara athugasemdum og gagnrýni frá nokkrum þingfulltrúum sem beindist sumt að mér, annað að báðum þingmönnum kjördæmisins og enn annað ótilgreint að forystu flokksins.

Í svörum mínum kom ekki annað fram, en það sem ég hef áður gert grein fyrir í þingflokknum. Svörin vildi ég ekki gefa fyrr á fundinum vegna þess að þá voru fréttamenn viðstaddir. Ég kom ekki í bakið á neinum, eins og Gunnar Bragi heldur fram. Hins vegar fer hann í bakið á mér og öðrum þingfulltrúum með því að fara opinberlega með rangt mál. Ég leyfi mér að halda því fram að það sé ásetningur, hann vissi betur. Hann ákveður, líklega í ljósi dræmra undirtekta við þennan málflutning á kjördæmisþinginu, að reyna fyrir sér á opinberum vettvangi og sjá hvort honum verði þar betur ágengt. Hann um það.

Hin efnislega gagnrýni Gunnars Braga er á þá leið að ég sé að reyna að toga flokkinn af miðjunni til vinstri og “fyrir vikið hefur þingmaðurinn hrakist út á kant í flokknum og á sér vart viðreisnar von, því það þarf meira en gamla komma til að halda aftur af flokknum í því að þróast til framtíðar og með samfélaginu”.

Lítum aðeins á hvernig staða flokksins er nú um stundir. Í öllum könnunum er flokkurinn með 1 – 5% fylgi fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor og fær engan borgarfulltrúa kosinn. Fréttablaðið birtir í dag könnum um fylgi flokkanna í Alþingiskosningum ef þær færu fram nú. Samkvæmt henni er Framsóknarflokkurinn með 5% fylgi, svipað og Frjálslyndi flokkurinn. Hefur flokkurinn tapað ríflega helmingi fylgisins frá Alþingiskosningunum 2003. Ríflega 95% kjósenda í höfuðborginni vilja ekki kjósa flokkinn, ef marka má þessa könnun. Ef þessar spár ganga eftir verður Framsóknarflokkurinn áhrifalaus smáflokkur, það er myndin sem blasir við.

Samt eru engir gamlir kommar að halda aftur af flokknum í Reykjavík, sjálfur formaður flokksins er þingmaður Reykvíkinga og forsætisráðherra og auk þess er félagmálaráðherra þingmaður flokksins og Reykjavíkur. Þeir eru sannkallaðir áhrifamenn og leggja sig vafalaust fram við “að þróa flokkinn til framtíðar með samfélaginu”. Það gengur vel í þjóðfélaginu, atvinnuástand gott, kaupmáttur vex og gróska á flestum sviðum í höfuðborginni.

En hvar er fylgið? Fylgið átti að vaxa í Reykjavík við það að formaðurinn færi þar fram. Af hverju minnkar það og minnkar? Af hverju sýna kannanir Gallup að 45% af þeim sem kusu Framsókn í síðustu Alþingiskosningum eru farnir frá flokknum og kjósa aðra flokka? Af hverju hefur fylgið minnkað úr 15% í 9-11% eftir að flokkurinn tók við forystu í ríkisstjórninni og áhrif flokksins á landsstjórnina jukust? Af hverju náði fylgið sögulegu lágmarki á síðasta ári og var 10% og minna í 7 mánuði af 12 mánuðum ársins?
Það er engu líkara en að flokkurinn sé kominn út á kant í stjórnmálunum.

Gunnar Bragi studdi það einarðlega þegar ég var rekinn úr þingnefndum haustið 2004. Síðan þá hefur fylgið við flokkinn jafnt og þétt minnkað og um þriðjungur þess er horfinn miðað við síðustu kannnanir. Sú ákvörðun reyndist ekki gæfuspor fyrir flokkinn því þótt hún væri tekin aftur síðar var skaðinn skeður. Sama myndi verða upp á tengnum þótt ég færi af vettvangi á Alþingi. Málflutningur “áhrifalauss þingmanns” er ekki skýring á slöku gengi flokksins. Fylgið myndi ekki aukast. Heldur þvert á móti myndi það enn minnka. Hvern ætlar Gunnar Bragi þá að reka af þingi?

Ég hef engar athugasemdir við það að Gunnar Bragi Sveinsson ræði málefni flokksins á opinberum vettvangi. En ég geri athugasemdir við kjarkleysi hans, hann þorir ekki að taka á vandanum og greina ástæður hans. Heldur kýs að ráðast að mér. Aðferð hans er flótti frá veruleikanum og er öllum aðferðum verri til úrbóta.

Stjórnmál snúast um traust. Staða Framsóknarflokksins nú endurspeglar það traust sem kjósendur bera til flokksins um þessar mundir. Kjósendur dæma menn af verkum sínum. Í þau er eðlilegast að leita skýringanna.

Athugasemdir