Pólitískar ofsóknir á Alþingi

Pistlar
Share

Það er miður að enn skuli vera efnt til pólitískra ofsókna á Alþingi. Allmargir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram tillögu um skipan sérstakrar rannsóknarnefndar. Athuga á störf ráðherra og embættismanna sem komu að samningaviðræðum við bresk og hollensk stjórnvöld vegna Icesave. Hér er augljóslega verið að hefna Landsdómsréttarhaldanna yfir Geir Haarde og spjótunum beint að Steingrími J. Sigfússyni og Svavari Gestssyni.

Íslensk stjórnmál setja verulega ofan við þennan tillöguflutning og var ekki á það bætandi eftir þær pólitísku ofsóknir sem landsmenn máttu fylgjast með í sölum Alþingis á síðasta kjörtímabili. Þessi hefndarleiðangur mun ekki skila neinum gagni en mörgum ógagni, helst Alþingi sjálfu. Sérhver ráðherra og embættismaður sem komið hefur að viðræðum og samningum vegna Icesave málsins frá upphafi hefur unnið sitt verk samkvæmt bestu vitund og með almannahag að leiðarljósi. Það er ómaklegt að halda öðru fram.

Það er skiljanlegt að eftir stóráföll eins og fall bankakerfisins verði menn nokkuð ráðvilltir á stjórnmálasviðinu. En það fráleitasta var að alþingismenn stæðu sjálfir í hlutverki ákæruvaldsins og beittu því gegn pólitískum samherjum og andstæðingum. Eðlilegt framhald af skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis , sem taldi að þrír ráðherrar hefðu sýnt af sér vanrækslu í störfum sínum, var að fela óvilhöllum aðilum rannsókn og eftir atvikum ákæruvald.

Það var ekki gert og illt var gert verra með tillögu um ákæru á hendur Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra og oddvita Samfylkingarinnar. Þar var gengið gegn áliti Rannsóknarnefndarinnar sem hafði komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til þess fjalla um hennar störf, þar sem Utanríkisráðuneytið fór ekki með nein þau mál sem snertu efnahagsmál. Hún gæti ekki sem utanríkisráðherra hafa brotið eða vanrækt nein lagaákvæði.

Benti Rannsóknarnefndin á að þáttur hennar einskorðaðist við stöðu hennar sem pólitískur oddviti Samfylkingarinnar ( 7. bindi, bls 291). Pólitískt hlutverk er án nokkurra lagalegrar stöðu og uppgjör við þau störf fara aðeins fram á pólitískum vettvangi, svo sem innan flokks og í almennum þingkosningum. Ráðherrar fara almennt einir með vald yfir sínum málaflokkum og heyra ekki undir aðra ráðherra, hvað þá oddvita stjórnmálaflokka.

Hins vegar hafa formenn stjórnarflokka hverju sinni lengi haft tilhneigingu til þess að halda sem flestum þráðum í sinni hendi og hafa viljað stjórna öðrum ráðherrum. Slík þróun nær því aðeins fram að ganga að ráðherrarnir og þingmenn samþykki og framkvæmi í störfum sínum annarra vilja. En þeirra verður alltaf lagalega ábyrgðin að lokum, en ekki pólitísku oddvitunum. Stjórnskipan landsins er skynsamleg og skýr og engin ástæða til þess að breyta henni. Vandinn liggur í undirgefnum þingmönnum sem afhenda formönnum í stjórnmálaflokkunum meiri áhrif en stjórnarskráin mælir fyrir um.

Aðförin að Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur er einsdæmi í íslenskri stjórnmálasögu. Þrátt fyrir að hún axlaði strax pólitíska ábyrgð og steig af stjórnmálaviðinu var reynt að draga hana fyrir Landsdóm sem átti að breytast í pólitískan Hæstarétt og úrskurða um störf formanns Samfylkingarinnar. Það var ólíkt því sem við átti um ákærur á hendur öðrum fyrrverandi ráðherrum. Þær byggðust á grunsemdum um vanrækslu á störfum þeirra sem ráðherrar og meint brot á lagalegum skyldum, en ekki að pólitísku hlutverki þeirra.

Of margir þingmenn í of mörgum flokkum reyndust ekki valda ábyrgð sinni og blönduðu saman pólitísku hlutverki og opinberum skyldum ráðherra. Eflaust voru ástæður þeirra margvíslegar og sumar jafnvel settar fram í góðri trú. En það sama má segja um galdrabrennur 17. aldarinnar. Margir þeirra sem að þeim stóðu framkvæmdu illhæfuverk sín í góðri trú. Hver svo sem rökin hafa verið þá verður niðurstaðan alltaf sú sama, að fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar sætti grófum pólitískum ofsóknum.

Þetta er líklega í fyrsta sinn í íslenskri stjórnmálasögu þar sem opinberlega er lagt til í þingskjali á Alþingi að formaður í stjórnmálaflokki verði dreginn fyrir dómstóla fyrir störf sín sem formaður flokksins. Ætli þeir þingmenn sem brutut blað í þingsögunni og lögðu þetta til hafi gert sér grein fyrir því hvað þeir voru að gera? Kemur það til greina af hálfu Eyglóar Harðardóttur og Sigurðar Inga Jóhannssonar t.d. leggja til að stefna Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir Landsdóm fyrir verk hans sem formaður Framsóknarflokksins?

Sjálfstæðismenn stóðu þá gegn skrípaleik pólitískra réttarhalda og tilllagan var að lokum felld. Þeir munu gera sjálfum sér og íslenskum stjórnmálum mest gagn með því að forðast sömu mistök og fyrrverandi stjórnarflokkar bera ábyrgð á.

" onclick="return fbs_click()" target="_blank" class="fb_share_link">Deila á Facebook

Athugasemdir