Sveinn bóndi í Hvammi í Dölum Björnsson er hvass í máli þegar talið berst að einkavæðingu og græðgi, eins og sjá má á vísum hans. Hann er lítill aðdáandi Sjálfstæðisflokksins og orti nýlega, líklega eftir síðustu Alþingiskosningar, þessar vísur:
Íhaldsins er nú senn allur vindur horfinn. Blása nokkrar aðeins enn eftirlegukindur.
Kveðja skal nú kóng og prins kölska gleymir enginn. Urðarmáni íhaldsins er til viðar genginn.
Svo er ein vísa um Hannes Hólmstein og í henni kemur fyrir frægt nýyrði, sem Davíð Odsson, súrraði saman í einni þingræðunni: